..even better then the real thing..

Remeber yesterday og Karfan.is

Höfundur: monsi á nóvember 3, 2007

Ekki veit neinn hver Skari Sköndulbeibí er né í hvaða bókmenntum hann er.

En hvað er að frétta er svo sem bara þetta sama nema að bloggið situr á hakanum vegna anna í lífi og starfi. Húsfélagsmál eru á fullu núna og er ég í stjórn svo að það tekur sinn toll. Stofan er bara stofan fínt að gera þó alltaf geti maður á sig blómum bætt.

Svo förum við á alla leiki Snæfells og er ég orðinn penni hjá Karfan.is þar sem ég kem með umfjöllun um heimaleiki Snæfells og aðra leiki í íslenskum körfubolta almennt ef vantar á leiki. Þetta er grefilli gaman og stúdera og svo getur maður hent inn fréttum og efni tengt körfunni almennt íslenskt og erlent, segjum þetta vera nett áhugamál. Fyrsta umfjöllun mín var leikur Hamars – Snæfells í gærkveldi og gekk það prýðilega. Svo henti ég inn minni fyrstu frétt líka.

En ég kem til með að linka héðan á umfjallanir mínar og fréttir en ekki hafa þær hér. Sem gerir það að verkum að meira pláss er fyrir fótboltann hér nei djók.  Jæja ætla að setjast niður og skrifa upp á blað hvað mig langar að verða þegar ég verð stór og setja svo inn alla kosti og galla hvers og eins miðað við vinnutíma, laun, staðsetningu, framtíðaráform, búsetu, fjölskyldu og fleira. Þannig að þið getið núna farið og gert eitthvað annað skemmtilegt ;) Eitt video í lokin.

Fann miða minn um daginn á tónleikana í höllinni á sínum tíma man ekki alveg hvaða ár

Monsi “remeber yesterday, I sure fucking do”

Skrifað í Blaður & Bull | 1 ummæli »

Mús og Skari Sköndulbeibí

Höfundur: monsi á október 15, 2007

Ekki virkar samlæsingin eftir að menn hjá Ingvari Helgasyni “löguðu” hana og er ég á leiðinni til þeirra að biðja þá vinsamlegast að gera betur.  Svo þarf að skella vetrardekkjum undir þotuna svo að hægt verði að skutlast á heimaleiki Snæfells og er sá fyrsti á föstudaginn á móti KEF. Illa fór í fyrsta leiknum á móti Njarðvík en þá held ég að þeir séu búnir að hrista haustbraginn af sér og fara nú ekki að tapa fyrir öðru liði úr Reykjanesbæ.

Ótrúlegt hvað er að gera á þessari stofu það er bara fullbókað helv… vikan maður og allt að gerast jiibbbíí  mætti halda að maður væri any goooood

Þurfti að skreppa frá hér í miðjum skrifum og veiða mús nr. 8 sem kötturinn minn Lísa kom inn með og hefur verið alveg rosadugleg við að gefa bónda sínum gjafir.

Annars datt mér í hug smá gáta og ætla ég að spyrja um Skara Sköndulbeibí og hvaðan hann kemur???

Hvaða Snæfellsmaður man ekki eftir þessu síðan 1991??

Monsi “ciao bellisima perlo tutti fran zu viachenci gratuarda porto bello” 

Skrifað í Blaður & Bull | 2 ummæli »

Samlæsing

Höfundur: monsi á október 5, 2007

Jæja kominn með samlæsinguna í bílnum í lag og var næsturm búinn að skella mér á einhvern nýjann en nýtti frekar tímann í að fara á netið á biðstofu hjá verkstæði og varahlutum Bílasölu Ingvars Helgasonar. Þar stillti ég upp liðinu fyrir komandi helgi í enska boltanum. Ekki get ég verið svo lánsamur að sjá einhverja leiki um helgina því lánsamari verð ég og fer út í Brokey á sláturtíð þessari.

Átti ekki góða spretti í körfunni á miðvikudagskvöld eins og fyrir viku þar sem sem ástæðan held ég að séu lifrapylsa og appelsínur c.a. 1 og 1/2 tíma fyrir lætin og þá er maður í  góðum gír. Virkaði allavega síðast.   Eitthvað til að kípa ykkur bissí óver helgina -ciao-

 Monsi “hæklari helgarinnar”

Skrifað í Blaður & Bull | 3 ummæli »

Vær så god ja..

Höfundur: monsi á október 2, 2007

Þvílíka snilldin, Snæfell bikarmeistari Powerade eftir sigur á KR og þá getur deildin farið að byrja. Þetta var klaufalegur leikur en harður og greinilegt að Snæfellingarnir mínir gef ekkert eftir í vetur. Setti upp 4-4-2 lið í Champions league inni á Fantasy league.com þar sem ég er líka með lið í Enska boltanum. Fyrir þá sem hafa áhuga þá velur maður 11 leikmenn og svo 6 auka einhverja úr einhverjum liðum  í Þýs, Íta, Spá, Eng, og hér er svo liðið mitt og ekkert smá helv….

Mm: Victor Valdez – Barcelona

Vörn: Rio Ferdinand -Man.Utd  , Alessandro Nesta-AC.Milan,  Sergio Ramos-Real Madrid, Kolu Toure-Arsenal

Miðja: Steven Gerrard-Liverpool,  Christiano Ronaldo-Man.Utd, Kaka-AC.Milan,  W.Scneijder-Real Madrid

Sókn: Fernando Torres- Liverpool   Lionel Messi- Barcelona

6 aukaleikmenn: Zé Roberto-Bayern München,  Ryan Giggs-Man.utd,   Arteta-Everton, 

Torsten Frings-Dortmund,   Thomas Rocchi-Lazio,  Andreas Iniesta-Bercelona  

Svo er hér smá snilld fyrir þá sem ekki fíla þetta boltarugl vær så god….

Monsi “gott er að borða gulræturnar grófa brauðið steinseljuna jájájájájájájáj´´………”

Skrifað í Blaður & Bull | Leave a Comment »

Powerade-bikarinn í Körfu

Höfundur: monsi á september 28, 2007

Fór í höllina í kvöld þar sem áttust við Snæfell og Njarðvík og ekki var að spyrja að leikslokum þar sem Snæfell tók þetta 85-79 eftir jafnann og skemmtilegann leik. Þetta voru undanúrslitaleikirnir og hafði KR betur á móti Skallagrím og mætum við þá KR á sunnudaginn kl 16

Daði Sigurþórs hringdi í morgun og hélt ég að þeim vantaði skotbakvörð eða leikstjórnanda, hélt að fréttir hefðu borist hratt frá kvöldinu áður þar sem við nokkrir strákar úr hólminum og hjá VÍS erum að taka á því í körfunni og eru hinu ýmsu gömlu taktar að stíga fram skal ég segja ykkur. Ekki var það nú það sem hann átti við mig erindi en hann fékk mig samt til að vera starfsmaður á leiknum. Það snýst um að fá bol sem stendur “starfsmaður” á og sitja og horfa á leikinn. Einfaldara gat það ekki verið og er það kannski bara byrjunin  ??  varla.

MOnsi “Rassgat í bala sem kann ekki að tala nema drullhala”

Skrifað í Blaður & Bull | Leave a Comment »

…segðu aaaa og svo spíta..eða spítta??

Höfundur: monsi á september 24, 2007

 Djööööööööööööfffulllll fooooooking óþolandi þegar færslan hreinsast burtu áður enn búið er að vistaaaaaaaaaaaaaaarrrrggggggggggggg

Var búinn að skrifa slatta um tannlækna og verðskráafeluleikinn þeirra. Sem í grunninn var svona: Fokkist til að taka tillit til neytenda og drullist til að fara eftir reglum blessssss og skemmtið ykkur yfir þessari snilld

monsi “með beinar tennur og bros á vör”

Skrifað í Blaður & Bull | 1 ummæli »

Játvarður hvaða helv…

Höfundur: monsi á september 13, 2007

Hey kíkið á þessa frétt soldið fucked up gaur.

En ég var að pæla í frétt sem ég sá í Fréttablaðinu í dag um strokufanga hérna heima. Hann er dæmdur í 16 ár fyrir manndráp af ásettu ráði en er kominn á Vernd eftir 9 ár og svo flýr hann.   ??? hann á fokking 7ár eftir og fyrir góða hegðun er honum leyft að fara, reyndar á Vernd en flýr þaðan. Alltof snemmt segi ég og helvítis rugl, fyrir þetta á hann að klára dóminn.

Svo er Hertoginn af Kent hérna vegna einhverjar afhjúpunar á einhverju . En hann heitir Edward!!! Ok en ekki Játvarður eins og of oft er ritað. Það er alveg óþolandi þegar þetta er gert og hann heitir bara einfaldlega ekki Játvarður því hann var ekki skírður það, hann heitir Edward. Hvað haldiði að kalluglan myndi segja ef ég heilsaði honum og segði “Hello I´m Simon and it´s an honor to meet you Játvarður”  come on þetta helvítis rugl að þýða erlend nöfn á íslensku. Í sömu frétt var talað um Churchill en ekki var hans nafn þýtt “Kirkjuhæð” neiiiii drulla.

Kíkið á pælingar Dr. Gunna á bakhlið Fréttablaðsins. Fínar pælingar um Lúxusbíla landans og manneklu á Leikskólum  ok eitt Living color í lokin.

Monsi  “eða kannski Munzhi” drulla

Skrifað í Blaður & Bull | 2 ummæli »

Stífla eða hvað ??

Höfundur: monsi á september 12, 2007

“Guð gaf karlinum heila og lim en blóð aðeins  til að nota annað í einu. Konum hinsvegar, gaf hann hvorugt svo að þær þurfa að tappa af sér einu sinni í mánuði”

Og þá vitið þið það. Það virðist stundum vera einhver ritstífla hér. Hef ég nokkrum sinnum komið hér inn en endað á að sleppa þessu bara og ákvað ég að ræða það aðeins og sjá hvor það myndi hjálpa til við að losa um. Stundum hefur mig langað til að skrifa um eitthvað sem var í fréttum en svo fannst mér það ekkert merkilegt þegar átti að skrifa. Eitt sinn þá skrifaði ég ekki einu sinni um 6-0 sigur Liverpool á Derby County í ensku úrvalsdeildinni og fóru einfaldlega á kostum.

Svo ætlaði ég að segja ykkur frá því að hér er búið að lakka glugga og eldhús skipta um stormjárn og þéttikant í opnanleg fög og hér er loksins kominn sólpallur og grillið sem er búið að vera í 2 ár í geymslu já 2 ÁR, er loksins komið út á pall.  En það er stuð og ég held bara að ég hafi losað vel núna já ummm takk.  Ísl 2 N-Írl 1    og svo hveð ek ykkr með einu JÚ TJÚB

MOnsi   “ritstífla er betri en hægðarstífla sem getur farið illa”

Skrifað í Blaður & Bull | Leave a Comment »

Sumarið að verða allt

Höfundur: monsi á ágúst 21, 2007

Brynhildi ábyggilega til mikilllar ánægju hef ég blogggöngu áfram eftir þetta sumar. Breyti ekkert af vananum og blogga um hvað sem í andskotanum mér dettur í hug hvort sem er kvart og kvein, íþróttir í einhverju magni til monts eingöngu eða ekki , góðar fréttir – slæmar fréttir, veður og veður út af engu, eða algjöra bullsteypu bara ef ekkert annað er í boði.

Sumarið var mjög fínt, fór ekki mikið og langt en skemmti mér og minni alveg þokkalega drullu töff bara. Hlaupum hér á því helsta, það var farið í Brokey í einhver skipti og eyjabústörfum sinnt af kostgæfni, við fórum einnig á ættarmót hjá Ninnu í Skagafirði í kulda og trekki kúrði volandi þett´er ekki ekki ekki ekki þolandi……. en gaman samt.

Stykkis er staður sem ekki er hægt að arka framhjá fyrir mann eins og mig og vörðum við hjúin Verslunarmannhelginni þar í góðum fíl og héldum upp á 2ja ára brúðkaups, skelltum okkur í kringum nesið, við jökulsrætur og svo í rómaða máltíð hér og mikið er helvíti fínt að borða þarna. Svo var farið á Danska daga sem að sjálfsögðu voru skrembi fínir og ekki laust við að maður hafi bara fundið á sér já skal segja ykkur að fundið á sér bara. Annars nenni ég ekki að skrifa meir.

Nú set ég hér eru tvö video fyrir ykkur bara svona að gamni eftir gjugg og grams mitt þarna inni.

Monsi “stundum valinn í liðið”

Skrifað í Blaður & Bull | 3 ummæli »

Titillag síðunar

Höfundur: monsi á júlí 19, 2007

hérna er titillag síðunnar eins og er. Ekki slæmt U2 live Mexico city (popmart tónleikaröðin mikla)

Enjoyyyyyyyyyyyyyyy

Skrifað í Blaður & Bull | 4 ummæli »