..even better then the real thing..

Remeber yesterday og Karfan.is

Höfundur: monsi á nóvember 3, 2007

Ekki veit neinn hver Skari Sköndulbeibí er né í hvaða bókmenntum hann er.

En hvað er að frétta er svo sem bara þetta sama nema að bloggið situr á hakanum vegna anna í lífi og starfi. Húsfélagsmál eru á fullu núna og er ég í stjórn svo að það tekur sinn toll. Stofan er bara stofan fínt að gera þó alltaf geti maður á sig blómum bætt.

Svo förum við á alla leiki Snæfells og er ég orðinn penni hjá Karfan.is þar sem ég kem með umfjöllun um heimaleiki Snæfells og aðra leiki í íslenskum körfubolta almennt ef vantar á leiki. Þetta er grefilli gaman og stúdera og svo getur maður hent inn fréttum og efni tengt körfunni almennt íslenskt og erlent, segjum þetta vera nett áhugamál. Fyrsta umfjöllun mín var leikur Hamars – Snæfells í gærkveldi og gekk það prýðilega. Svo henti ég inn minni fyrstu frétt líka.

En ég kem til með að linka héðan á umfjallanir mínar og fréttir en ekki hafa þær hér. Sem gerir það að verkum að meira pláss er fyrir fótboltann hér nei djók.  Jæja ætla að setjast niður og skrifa upp á blað hvað mig langar að verða þegar ég verð stór og setja svo inn alla kosti og galla hvers og eins miðað við vinnutíma, laun, staðsetningu, framtíðaráform, búsetu, fjölskyldu og fleira. Þannig að þið getið núna farið og gert eitthvað annað skemmtilegt ;) Eitt video í lokin.

Fann miða minn um daginn á tónleikana í höllinni á sínum tíma man ekki alveg hvaða ár

Monsi “remeber yesterday, I sure fucking do”

Ein ummæli to “Remeber yesterday og Karfan.is”

  1. Arnar sagði

    Til hamingju með fréttaritarastarfið, gott að hafa vin sem kollega í hinum gallharða heimi blaðamennskunar! :)

Skildu eftir svar

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <pre> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>