Sjá Karfan.is nýjasta umfjöllun og svo hér uppi er hægt að skoða linka
En annars allir hressir? Ég er að elta boltaleiki bara til að skrifa um og hef afskaplega gaman af og verður þá oft lítil nenna á frekari skrifum annarsstaðar. En senn fer nú jóla hasar í gang og þeir sem vilja klipp og fínerí fyrir Jól þurfa að fara að spá i tíma annars engin pressa neitt.
Er boðið í tvö brúðkaupí Desember og er minn kæri vin Benni Eyþórs að játast Völu sinni 15.des og svo Egill frændi ætlar að játast Ástu sinni 26.des.
Ekki veit neinn hver Skari Sköndulbeibí er né í hvaða bókmenntum hann er.
En hvað er að frétta er svo sem bara þetta sama nema að bloggið situr á hakanum vegna anna í lífi og starfi. Húsfélagsmál eru á fullu núna og er ég í stjórn svo að það tekur sinn toll. Stofan er bara stofan fínt að gera þó alltaf geti maður á sig blómum bætt.
Svo förum við á alla leiki Snæfells og er ég orðinn penni hjá Karfan.is þar sem ég kem með umfjöllun um heimaleiki Snæfells og aðra leiki í íslenskum körfubolta almennt ef vantar á leiki. Þetta er grefilli gaman og stúdera og svo getur maður hent inn fréttum og efni tengt körfunni almennt íslenskt og erlent, segjum þetta vera nett áhugamál. Fyrsta umfjöllun mín var leikur Hamars – Snæfells í gærkveldi og gekk það prýðilega. Svo henti ég inn minni fyrstu frétt líka.
En ég kem til með að linka héðan á umfjallanir mínar og fréttir en ekki hafa þær hér. Sem gerir það að verkum að meira pláss er fyrir fótboltann hér nei djók. Jæja ætla að setjast niður og skrifa upp á blað hvað mig langar að verða þegar ég verð stór og setja svo inn alla kosti og galla hvers og eins miðað við vinnutíma, laun, staðsetningu, framtíðaráform, búsetu, fjölskyldu og fleira. Þannig að þið getið núna farið og gert eitthvað annað skemmtilegt Eitt video í lokin.
Fann miða minn um daginn á tónleikana í höllinni á sínum tíma man ekki alveg hvaða ár