Mús og Skari Sköndulbeibí
Höfundur: monsi á október 15, 2007
Ekki virkar samlæsingin eftir að menn hjá Ingvari Helgasyni “löguðu” hana og er ég á leiðinni til þeirra að biðja þá vinsamlegast að gera betur. Svo þarf að skella vetrardekkjum undir þotuna svo að hægt verði að skutlast á heimaleiki Snæfells og er sá fyrsti á föstudaginn á móti KEF. Illa fór í fyrsta leiknum á móti Njarðvík en þá held ég að þeir séu búnir að hrista haustbraginn af sér og fara nú ekki að tapa fyrir öðru liði úr Reykjanesbæ.
Ótrúlegt hvað er að gera á þessari stofu það er bara fullbókað helv… vikan maður og allt að gerast jiibbbíí mætti halda að maður væri any goooood
Þurfti að skreppa frá hér í miðjum skrifum og veiða mús nr. 8 sem kötturinn minn Lísa kom inn með og hefur verið alveg rosadugleg við að gefa bónda sínum gjafir.
Annars datt mér í hug smá gáta og ætla ég að spyrja um Skara Sköndulbeibí og hvaðan hann kemur???
Hvaða Snæfellsmaður man ekki eftir þessu síðan 1991??
Monsi “ciao bellisima perlo tutti fran zu viachenci gratuarda porto bello”
Kári Bro sagði
heh gott myndbrot frá ‘91 er orðið svona langt síðan? úff maður er að verða gamall I)
Bryn sagði
Blessunarsamlega koma mínir 7 kettir ekki inn (sofa í hlöðunni) svo músafórnirnar koma aðeins á tröppurnar hjá mér ef þeim er ekki sporðrennt samstundis…….þú átt því alla mína músasamúð Monsi minn.
Skilaðu kveðju til Monsu!
Bryn