Ekki virkar samlæsingin eftir að menn hjá Ingvari Helgasyni “löguðu” hana og er ég á leiðinni til þeirra að biðja þá vinsamlegast að gera betur. Svo þarf að skella vetrardekkjum undir þotuna svo að hægt verði að skutlast á heimaleiki Snæfells og er sá fyrsti á föstudaginn á móti KEF. Illa fór í fyrsta leiknum á móti Njarðvík en þá held ég að þeir séu búnir að hrista haustbraginn af sér og fara nú ekki að tapa fyrir öðru liði úr Reykjanesbæ.
Ótrúlegt hvað er að gera á þessari stofu það er bara fullbókað helv… vikan maður og allt að gerast jiibbbíí mætti halda að maður væri any goooood
Þurfti að skreppa frá hér í miðjum skrifum og veiða mús nr. 8 sem kötturinn minn Lísa kom inn með og hefur verið alveg rosadugleg við að gefa bónda sínum gjafir.
Annars datt mér í hug smá gáta og ætla ég að spyrja um Skara Sköndulbeibí og hvaðan hann kemur???
Hvaða Snæfellsmaður man ekki eftir þessu síðan 1991??
Monsi “ciao bellisima perlo tutti fran zu viachenci gratuarda porto bello”
Jæja kominn með samlæsinguna í bílnum í lag og var næsturm búinn að skella mér á einhvern nýjann en nýtti frekar tímann í að fara á netið á biðstofu hjá verkstæði og varahlutum Bílasölu Ingvars Helgasonar. Þar stillti ég upp liðinu fyrir komandi helgi í enska boltanum. Ekki get ég verið svo lánsamur að sjá einhverja leiki um helgina því lánsamari verð ég og fer út í Brokey á sláturtíð þessari.
Átti ekki góða spretti í körfunni á miðvikudagskvöld eins og fyrir viku þar sem sem ástæðan held ég að séu lifrapylsa og appelsínur c.a. 1 og 1/2 tíma fyrir lætin og þá er maður í góðum gír. Virkaði allavega síðast. Eitthvað til að kípa ykkur bissí óver helgina -ciao-
Þvílíka snilldin, Snæfell bikarmeistari Powerade eftir sigur á KR og þá getur deildin farið að byrja. Þetta var klaufalegur leikur en harður og greinilegt að Snæfellingarnir mínir gef ekkert eftir í vetur. Setti upp 4-4-2 lið í Champions league inni á Fantasy league.com þar sem ég er líka með lið í Enska boltanum. Fyrir þá sem hafa áhuga þá velur maður 11 leikmenn og svo 6 auka einhverja úr einhverjum liðum í Þýs, Íta, Spá, Eng, og hér er svo liðið mitt og ekkert smá helv….
Mm: Victor Valdez – Barcelona
Vörn: Rio Ferdinand -Man.Utd , Alessandro Nesta-AC.Milan, Sergio Ramos-Real Madrid, Kolu Toure-Arsenal
Miðja: Steven Gerrard-Liverpool, Christiano Ronaldo-Man.Utd, Kaka-AC.Milan, W.Scneijder-Real Madrid
Sókn: Fernando Torres- Liverpool Lionel Messi- Barcelona
6 aukaleikmenn: Zé Roberto-Bayern München, Ryan Giggs-Man.utd, Arteta-Everton,
Torsten Frings-Dortmund, Thomas Rocchi-Lazio, Andreas Iniesta-Bercelona
Svo er hér smá snilld fyrir þá sem ekki fíla þetta boltarugl vær så god….
Monsi “gott er að borða gulræturnar grófa brauðið steinseljuna jájájájájájájáj´´………”