Brynhildi ábyggilega til mikilllar ánægju hef ég blogggöngu áfram eftir þetta sumar. Breyti ekkert af vananum og blogga um hvað sem í andskotanum mér dettur í hug hvort sem er kvart og kvein, íþróttir í einhverju magni til monts eingöngu eða ekki , góðar fréttir – slæmar fréttir, veður og veður út af engu, eða algjöra bullsteypu bara ef ekkert annað er í boði.
Sumarið var mjög fínt, fór ekki mikið og langt en skemmti mér og minni alveg þokkalega drullu töff bara. Hlaupum hér á því helsta, það var farið í Brokey í einhver skipti og eyjabústörfum sinnt af kostgæfni, við fórum einnig á ættarmót hjá Ninnu í Skagafirði í kulda og trekki kúrði volandi þett´er ekki ekki ekki ekki þolandi……. en gaman samt.
Stykkis er staður sem ekki er hægt að arka framhjá fyrir mann eins og mig og vörðum við hjúin Verslunarmannhelginni þar í góðum fíl og héldum upp á 2ja ára brúðkaups, skelltum okkur í kringum nesið, við jökulsrætur og svo í rómaða máltíð hér og mikið er helvíti fínt að borða þarna. Svo var farið á Danska daga sem að sjálfsögðu voru skrembi fínir og ekki laust við að maður hafi bara fundið á sér já skal segja ykkur að fundið á sér bara. Annars nenni ég ekki að skrifa meir.
Nú set ég hér eru tvö video fyrir ykkur bara svona að gamni eftir gjugg og grams mitt þarna inni.
Monsi “stundum valinn í liðið”