..even better then the real thing..

Archive for júní, 2007

Brokey Æðarkolla

Höfundur: monsi á júní 14, 2007

Jæja löngu kominn tíma á að fara heim út í eyju og þið getið fræðst meira um Brokey með því að smella á Brokey.

Eins og ég segi alltaf þá er þetta minn andlegi hagnaður í lífinu, á  meðan aðrir eltast við þann fjárhagslega eingöngu. Þarna erum við að fara í að æðardúntekju og er alveg sérstaklega yndislegt þegar Kollan (sem er Æðarkollan, fuglinn sko) er búin að drulla yfir eggin eða ungana til að fæla frá óviðkomandi með lyktinni. En ekki veigrar maður fyrir sér að stinga hendinn ofan í. ha ha ha stuð. Nei nei sumar eru nú farnar af hreiðri með ungana og sumar eru snyrtó og gera manni ekki slíkt.  En jæja farinn í bili gleðilegan 17.júní  og smá video for you pervs

æjá ekki má gleyma þeirri snilld að FH vann KR og sitja KR-ingar á botninum ííí´hahaha en ÍA tapaði með skell reyndar

Monsi “dúnmjúkur inn við beinið”

Skrifað í Blaður & Bull | 1 ummæli »

Welcome to the jungle

Höfundur: monsi á júní 4, 2007

“Það er gott að búa í Kópavogi”  jæja getur vel verið en það er betra að búa í Hafnarfirði. En þetta mál er bara brandari og einhvern veginn kemur ekki á óvart. Special treat frá Gullfingrinum Geira til fyrirmanna á bónusafslætti og af hverju eru tekinn af þessum stúlkum vegabréfinn? Og af hverju stamar Geiri svona í sjónvarpsviðtali?´Held að þessi drulla nái lengra upp á rassgatið á þessum mönnum en okkur grunar.

Svo ættu menn að fara að slaka á í sambandi við landsliðið. Face it við erum bara ekki svona góðir þegar allt kemur til alls. Ágætir hver í sínu liði og svo situr Eiður á bekknum flesta leiki. ææææiiii hef ekki nennu í meira svona. Ég þarf of mikinn pistill í Kópavogsgóldið og íslenska landliðið í fótbolta til að rasa út og ætla ég að æpa út í regnið í staðinn.

En ný starfsstúlka byrja á stofunni á morgun og er hún nemi á 2. ári og svo er ætlunin að bæta við útlærðum starfsmanni í haust, það er bara að aukast svo grefilli mikið. En það er gott því þá kemst ég kannski í sumarfrí á næsta ári, KANNSKI.

Annars er ég bara að skrifa til að skrifa tékkið á þessu með Axl Rose og svo eru fleiri skemmtilega klikkuð moment með GNR þarna til hliðar eins og þetta  og fleira.

Monsi “welcome to the jungle beibí”

Skrifað í Blaður & Bull | 3 ummæli »