..even better then the real thing..

Archive for maí, 2007

Smá looking back

Höfundur: monsi á maí 30, 2007

 Væri til í að vera í jafngóðum gír á Krít eins og hér.

Svo fór ég að hlusta á Boy plötuna með U2 og lokaði augunum og ímyndaði mér að ég væri staddur við Slane Castle á Írlandi í ágúst 2001 oooooooooohhhhhhhh  hverjir voru þar???

Þá man ég eftir þessu lagi sérstaklega.

Þetta er “Out of control” Slane 2001 beibí

Monsi “sýra nostalgía, geng ég þér á hönd, je je je”

Skrifað í Blaður & Bull | Leave a Comment »

Sumar og snjór

Höfundur: monsi á maí 21, 2007

Jæja það er koma svona sumartími á mann þar sem maður verður latur við blogg. En eitthvað verður maður við og við.  Merkilegur andskoti þessi éljagangur.

Stjórnin hélt en sleit vegna veikrar stöðu Framsóknar, en einhver spurði hvort ég væri að drekka frá mér ríkisstjórnarfallið eftir 1. tölur sem var reyndar snemmkúkur. Ef skoðuð eru kjördæmakjör D-lista þá bæta þeir við sig 2 og svo 1 jöfnunarmanni. En svo er það Samfylkingin sem tapar svipað og Framsókn og fær um 10 færri kjördæmakjörna (15) en sjálfstæðismenn og svo 3 jöfnunarmenn ofan á það, sem skítbjargar þeim miðað við hve fallið var. Og svo á endanum eiga þeir engann annan kost en að hjúfra sig undir Sjálfstæðisflokkinn til að komast til valda enda vitað hvað mönnum klæjar þar að komast í einhverja stóla.  ææææiii greyin. 

Svo skulum við sjá til því eftir allt saman er sama rassgatið undir þessu öllu þegar í valdastól er komið. Svo mikið var fallið hjá mínum flokk að ég er glaður með viðbætt fylgi og að bæta við 5. þingmanni í mínu kjördæmi. Síðasta sem ég tjái mig um kosningarnar að þessu sinni.

Annars er svo bara eitthvað ættarmót, Brokeyjarferðir, Danskir, ofl ofl á dagskrá í sumar en nóg af því seinna.

Monsi “stjórnar stjórnarviðræðum”

Skrifað í Blaður & Bull | 3 ummæli »

júrókosningar

Höfundur: monsi á maí 8, 2007

Að öðrum kosningum þá ætla ég að kjósa finnsku gelluna í evróvision bara gamni fíla Finnana almennt. Meira af Hanna Pakarinen.

 Annars eru svíarnir í The ark í lagi svolítið söngleikja.

HVAÐ ER ÞETTA FRÁ ÚKRAÍNU!!   Og alveg FRÁBÆRT frá KRÓATÍU .  “Killing ROCK and raping ROLL.”

Missti mig yfir Júró á túbunni í kveld. Veriði sæl

Monsi “emjandi eftir Króatíu ææææiiii”

Skrifað í Blaður & Bull | 1 ummæli »

Kosning

Höfundur: monsi á maí 8, 2007

Var að skoða bloggið hjá Pálmari og sá þetta!

Og fékk þessa niðurstöðu sem ég mótmæli alls ekki.

Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 68.75%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 30%
Stuðningur við Samfylkinguna: 37.5%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 12.5%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 39%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 40%
 

Skoðanir þínar eru í mestu samræmi við skoðanir Sjálfstæðisflokksins!

Monsi ” borða bara 1944 núna”                                                  

Skrifað í Blaður & Bull | Leave a Comment »

Nightwish

Höfundur: monsi á maí 4, 2007

Það er eitthvað sem mér finnst skemmtilegt við þetta.  Fíla´ða  virkilega að loka augunum og hlusta lengi á þetta, gæti sofnað værum.

Monsi”fíla finnana”

Skrifað í Blaður & Bull | Leave a Comment »

ein, zwei, politzei

Höfundur: monsi á maí 4, 2007

Jæja mikið er gott að vera Liverpool fan þessa dagana. Ekki nóg með að slá Barcelona og Chelsea út heldur þá tapaði Man.utd. fyrir mínum ítölsku AC. Milan, en samt vona ég að MU eigi eftir að taka bæði bikar og deild svo Mourinho brosi ekki þetta tímabil. 

En hvað um það þá var þetta góð vika fyrir Liverpool.

Er alveg skriftómur svooooo bæ

monsi”empty”

Skrifað í Blaður & Bull | Leave a Comment »