..even better then the real thing..

Archive for apríl, 2007

1×2

Höfundur: monsi á apríl 26, 2007

Ekki vann ég miðana á leikinn Liverpool-Chelsea 1. maí nk. En hér er tippið mitt svona að gamni:)

                           1                     X                       2


Chelsea

  :  
Bolton
    1

Blackburn
  :   Charlton     1
Arsenal   :   Fulham     1

Wigan
  :   West Ham     2
Sheff. Utd   :  
Watford
    X
Middlesbro   :   Tottenham     2
Everton   :  
Man. Utd
    2
Man.
City

  :   Aston Villa     1

Portsmouth
  :  
Liverpool
    2

Reading
  :  
Newcastle
    1

Það er alveg magnað hve maður getur hreyft sig í körfu ennþá miðað við líkamlegt ásigkomulag sem gæti verið betra. Spurning um að koma sér í form og fara í 1.deildina með Haukunum. Veit ekki??

Var að spá í það að minnka þann munnsöfnuð sem uppi er hjá mér stöku sinni í sinni en fokk it. Reyni samt að andskotast til að stilla því hóf þessu fokki og frussukúki.

Monsi “..going Magic..” “.. eða oh oh oh it´s Magic, you know…

Skrifað í Blaður & Bull | Leave a Comment »

með lífsmarki

Höfundur: monsi á apríl 25, 2007

Gott að frétta úr firðinum.

Það nýjasta er að nú ætla ég fá mér reiðhjól því löngu er kominn tími á hreyfingu og þar sem hnéin á litlum Brokeying eru ekki gerð til hlaupa á hörðu malbiki til lengri tíma þá er hjólið tilvalið til styrkingar. 

Fannst fyndið eða meira svona silly að maður eins og Jón Baldvin er að blammera þetta í sjónvarpi  kalla Þorgerði Katrínu  “ljóskuna í menntamálaráðneytinu” held bara að sumir eigi að sjá bara þegar þeirra tími er búinn og vera ekki að þessu rugli og frussukúka uppá bak með gömlum tímatali og bulli og líta í núið. Held að þetta japl frá gömlum krata sé dalandi Samfylkingunni í suðvestur ekki til framdráttar og líka eftir stærstu stjórnarmistök þeirra hér í Hafnarfirði. En aðdáun minni á vorum Menntamálaráðherra leyni ég ekki fyrir ykkur kæru lesendur og  hennar fólki. En þó var ég sammála Bryndísi með Álafosskvosina.

En nóg komið að pólitík, því eftir ábendingar reyni ég að minnka það nema það brenni við svo svakalega, svo missti ég mig bara Gauti minn í úrslitakeppninni um Snæfell því það var mér efst í huga, en gaman að því bara :)

Svo finnst mér Eiki Hauks bara eiga eftir að verða alveg fokking brilliant í Helsinki sem minnir mig á það að mig hefur lengi langað til Finnlands, svo ég bara óska eftir því að einhver hjá RÚV ohf bænheyri mig og bjóði mér og minni. Góðar stundir.

Monsi ” I´ll let the music play, while love lies softly bleeding”   textinn

Skrifað í Blaður & Bull | 1 ummæli »

80% mæting og atkvæði

Höfundur: monsi á apríl 13, 2007

Komiði sæl og blessuð.

Páskafríið búið og var það gott, djamm á 5 Fiskum stendur upp úr þar sem ótal manns voru við undirspil Bjössa Geir og Daða sem endaði með tilheyrandi rölti á milli samkvæma og svo ekki stigið upp úr sófa í nokkra daga fílingur. Stykkis var að heillin og snilldar hvíld var það.

Svo er tímabilið í körfunni líka búið hjá Snæfell sem var  súrt en svona er þetta. Ég hef heitið því að mæta á fleiri leiki en síðast en á síðasta tímabili missti ég af 6 leikjum sem voru útileikirnir við Skallagrím, Tindastól, Keflavík og heimaleikirnir við Þór Þ, ÍR og Hauka. Sem er ágæt mæting samt af 22 deildarleikjum, 1 í bikar og 7 í úrslitum í allt mætt á 24 af 30 sem fín 80% mætingartölfræði hjá mér, betra en á framhaldsskólaárunum.

En að öðru þá leiðast mér orðið kosningar og þetta vesen í kringum þær, pésar og prump inn um lúguna og stíliseraðar myndir á öllum strætóskýlum. Allt er þetta hluti af þessu og verður maður að berja þetta í sig þrátt fyrir nýafstaðnar kosningar í Hafnarfirði og kannski ekkert skrýtið að leiði læðist að eftir ófáa mánuði af kosningaáróðri. 

Sá einhverja þætti þar sem forystumenn sátu fyrir svörum í sínu kjördæmi og það eina sem komst að, mest allann tímann, var spekúlasjón um hver myndi sænga hjá hverjum eftir kosningar, hvort þessir gætu unnið saman eða hinir eða svona kjaftæði. Alltaf er spáð í hvert kosningamálið sé þetta sinnið og svo er þvaðrað endalaust um gras og stóriðju en samt ekki, því niðurstöður heimskulegra skoðannakannana og hverjir væri mögulegir í næstu ríkisstjórn ber alltaf hæst. Hvernig væri nú að fara tala um málefnin og sjá svo bara hvað kemur úr kössunum. Hvað má betur fara og komið nú með svör og lausnir ekki endalausa andskotans espileiki í öllum helvítis þáttum. En þetta er einkennandi orðið fyrir kosningabaráttu á Íslandi og mjög mikið stýrt og stillt upp af fjölmiðlum. Fyrirsagnakenndar og skoðannakannana kosningar eru þreytandi og ekki mér að skapi allavega, vil sjá að umræðan um málefnin nái einhverju marki og skili einhverju til okkar. 

Kannski skil ég það svo að þeir sem ætla að senda núverandi ríkisstjórn í frí séu einfaldlega að kúka upp á bak með fálmi og fáti og geti einfaldlega ekki gert betur en raun ber vitni.  Á endanum stöndum við fyrir því að hentistefna, ákvörðunarleysi eða hræðsla við ákvörðunarábyrgð, afturhaldsemi, forsjárhyggja og að menn lifi í draumalandi en ekki hér á landi, stefni skútunni til skerja.  -Prove me wrong-  Ég veit hvað ég hef, en hvað fæ ég? það er spurningin.

Svo er líka búinn að ákveða hvað ég ætla að gera 12. maí fyrir utan að kjósa og vera fullur í eurovision-partý ef þið viljið ná í mig þá verð ég hér yfir daginn, so just hop in.

 Svo er ekki úr vegi að nefna Liverpool komst áfram í 4 liða undanúrslit MDE, og mæta þar Chelsea. Gaman það.

Monsi “nú fer allt að verða viltlaust”  :) :)

ps. vildi koma því til skila frá NINNU að hún var með í 80% mætingu á Snæfellsleiki og verðu líka með mér í Laugum spa 12. maí. Veit ekkert hvað hún ætlar að kjósa enda kemur mér það ekki við. :)  

Skrifað í Blaður & Bull | 2 ummæli »

oddleikur og beint í Hólminn

Höfundur: monsi á apríl 4, 2007

Ekki var sigur í afmælisgjöf, en oddaleikur staðreynd og málið að taka hressilega á því þar. Veit ekki hvað Fannar var að tala um fráköstin að þeir hafi haldið Snæfellingum frá körfunni og það hafi verið málið ??? Snæfell var með 37 og hinir 38  (sjá tölfræði) svo voru  Snæfellsmenn með 16 tap . bolta en hinir 17 sem er betra en áður, en eins og Hlynur sagði “þá spilum við upp á þetta á öðrum heimavelli okkar í vesturbænum” þar sem áhangendur Snæfells verða trylltir. 

Var rétt áðan að sjá Liverpool taka PSV Eindhoven 3-0 á útivelli í Meisaradeildinni, ekki vandamálið það. Snillingarnir Gerrard. Riise og Crouch skoruðu mörkin 3.

Ætla að taka nett djamm á morgun vegna frestunar á páskaferð í Hólminn um 1 dag. Sem kemur til vegna oddleiksins sem er á fimmtudag  og fer heim eftir það. Þar verður slappað af og ekki verður það svo slæmt að kíkja á þá frændur Daða og Bjössa sem halda uppi músíkskemmtun á Fimm fiskum eftir 00:00 Föstudaginn langa. 

Annars bara seinna.

Monsi “verður að fara æfa drengur!!!!”

Skrifað í Blaður & Bull | Leave a Comment »

Megastuð úr Vesturbænum í Hafnarfjörð

Höfundur: monsi á apríl 1, 2007

Allavega er þetta búin að vera fín helgi. ( ekki Reynir samt) En hann er samt fínn:)

Laugardagurinn gekk sem skildi og byrjaði kl 8 í vinnu nett og smooth. Síðan var arkað í fjölskyldumyndatöku þar sem nokkrum var smellt á filmu í tilefni af 6. tugs afmælis tengdamóður minnar sem rennur í hlað þann 11. apríl.

Eftir þetta allt fékk þær fínu fréttir að Liverpool hefði tekið Arsenal 4-1 og gaman að hefna ófarana sem undan hafði gengið í leikjum þessara liða. En fyrst og fremst fór ég, strax eftir myndatökuna, á einn af skemmtilegri leikjum vori komanda, Snæfell -RK (get ekki skrifað þetta rétt af persónulegum ástæðum og kem ekki til með að nefna þetta félag réttu nafni vegna þess). 

Svo eftir leikinn var kosið um álið í Firðinum og ætla ég ekki að gefa upp mitt atkvæði, heldur hef ég bara þetta að segja að ég græt ekki niðurstöðuna né heldur er ég fagnandi, tek þessu öllu með jafnaðargeði og heldur lífið í firðinum bara áfram þar sem frá var horfið. Einfalt.

Komið var í DHL-hallen í stöðunni 9-16 í 1. leikhluta fyrir Snæfell sökum seinkunar á okkur. En ekki gerði það mikið til og gaman að sjá að strákarnir geti tekið af skarið þó svo að okkur vanti svona fyrstu mínúturnar. En að leiknum þá var hann spenna frá upphafi til enda og endaði hann á að Snæfell var yfir 58-61 þegar hinir eru með boltann og Brynjar Þór setur 3 og jafnar 61-61, Snæfell geisist af stað og þegar um 4 sek eru eftir setur Justin niður 2 í sniðskoti eftir að hafa skokkað óvaldaður í teig heimamanna í Vesturbænum staðan 61-63 og Pálmi fær boltann þegar 2 sek eru eftir og reynir langskot fyrir 3 stig en skotið af spjaldi í hringinn og af. Niðurstaðan að Snæfell vann glæstann sigur eftir ekki kannski svo áferðafagrann leik en samt skárra en í síðustu leikjum.

Verð að minnast á tölfræði í leiknum og tek þá Brynjar Þór frá rk út og mikið andskoti eru menn þarna í Vesturbænum heppnir að hann var í stuði og hélt þeim á floti og skemmtilegt efni þar á ferð, og megum við án nokkurs vafa heyra og sjá meira af þessum dreng í Körfunni í framtíðinni. Hann var sem sagt með 11/11 í vítum, setti niður 6 þrista af 11 reyndar og skoraði 31 stig af 61 liðsins.

Sá að Hlynur sagði við Fréttablaðið að hann hefði upplifað sig á heimavelli vegna gríðalegs stuðnings áhangenda Snæfells. Þetta er einmitt takmarkið kæru lesendur að liðið upplifi sig á heimavelli þegar þeir spila á útivelli og hvet ég alla til að skoða það ekki bara þegar komið er í úrslitakeppni heldur alltaf, bara mæta, mæta og mæta eða að fá skróp í kladdann. Allir í Hólminn á morgun mánud. 2/4 ´07  Áfram Snæfell. 

 Og vonar konan mín að hún fái sigur í afmælisgjöf því hún á einmitt afmæli þá jibbíí.

Monsi “bara loose á því þessa dagana”

Skrifað í Blaður & Bull | Leave a Comment »