..even better then the real thing..

Archive for mars, 2007

móralskt og mislík

Höfundur: monsi á mars 28, 2007

Hélt ég myndi fokking drepast!

82-83 fyrir gestunum og Snæfell með boltann sem gengur á milli manna, Nonni fær það bara utan við 3ja, feikar alveg ótrúlega og veður af stað inní teig þar sem mæta honum nokkrir úr hinu liðinu og fleygir drengurinn þá í snarhasti boltakvikindinu í Martin sem bara setur helvítis 3 og ég var að fara hringja í 112 og biðja um bleiu og skeining takk fyrir. 85-82 fyrir Snæfell og 1-1 í einvíginu við þá þarna úr vesturbænum. ´þrumuskitípíkurnarágestunum´ see ye in dé há ell hallen laugd. kl 16 fokkers

En að öðru þá er ég búsettur í Hafnarfirðinum og ætla að nýta kosningarétt minn           ál-augardaginn, æææi nenni ekki að tala um það. Kýs bara :)

Mislíkar fólk sem kemur inn á stofuna mína eins og ein kelling sem vippaði sér inn. Bauð góðann daginn og tjáði Ninnu það að hún ætlaði að kaupa d:fi handa syni sínum, og afgreiddi Ninna það með miklum sóma þessi elska. Svo bað hún Ninnu að sýna sér eitthvað sem hún nota gæti fyrir blástur sem sagt eitthvað volumizing. Ninna sýndi henni nokkur efni frá TIGI sem við erum með og ekki var neitt nógu gott og á endanum sagði hún, “…þetta þarf að vera lyktarlaust eins í Sebastian sem eigendurnir á undan ykkur voru með, þetta var nefnilega gamla stofan mín áður en þið komuð og eyðilögðuð allt……” foooooookkkkk drulllllaaaao fokkfokkfokk ef ég hefði staðið þarna þá hefði helvítis kellingin verið brókuð yfir haus og hlandmigið á kvikindið djöfulssins djöfull.

En Ninna svaraði hressilega á móti að við höfðum hreinlega ekki eyðilagt eitt né neitt, og þá hrökklaðist hún út og átti kannski ekki von á svari, sem var kannski betra en mín hugmynd, en maður verður bara svo fúll maður.

Hvurn djöfullinn eigum við að gjalda fyrir það að kaupa eina Hársnyrtistofu sem var ekki með svo gott rep hvort eð er. Sýnist við vera bara að rífa upp eitthvað sem ekkert skildi eftir sig og gera það déskoti vel, allavega erum við á haus og með aðeins meiri metnað en talað erum forvera okkar.

Sem sagt CUT hárstúdíó Lækjargötu 34b , 220 Hafnarfirði s. 565-5400

“KOMDU EÐA ÉG BRÓKA ÞIG” :) :)

Svo að endingu þá ætla ég að óska Halldóri frænda og Sigrúnu til hamingju með litlu prinsessuna sem þau eignuðust í gærkveldi. þ.e. 27.03´07  hipp hipp húrra….

monsi “kátur og hress, bara soldið á tánum yfir körfunni”

Skrifað í Blaður & Bull | 2 ummæli »

hvr r llr hlvts srhljðrnr

Höfundur: monsi á mars 27, 2007

Veit einhver hver titillinn er? ok reyndu þig og þú munt verða glaður :) 

“Bölmóðsýki og brestir bera vott um styggð, lymskufullir lestir útiloka dyggð” ójæja  seint skíta sumir en skíta þó, allavega þeir sem með latann ristil bera (sig).

Hættum þessu bulli og snúum okkur (ökklann) að alvörunni. En Snæfell lét í lægra haldi (ekki brjósta, skamm skamm) eftir að einhverjir ss gúndar úr vesturbænum höfðu sigur. Get eiginlega ekki skrifað nafnið á liðinu því þá gæti ég uppselt (ekki miðarnir) heldur yfi tölvuna. En fjórði leikhluti var svakaleg endurkoma og gríðaleg stemma og þá sá ég hvar strákarnir settu spennustigið og ruglinginn til hliðar, því það var jú bara misskilningur að missa hænurnar úr kofanum svona snemma í vesturbænum.

Ég fer ásamt frú í Hólminn og æpi á ykkur Snæfellsmenn til hvatningar enda er fátt skemmtilegra en að æpa á fullorðna karlmenn í boltaleik og niðrandi óp fá að hljóma á hænurnar í svart hvítu búningunum aðallega mér til skemmtunar.  Rock on fokkers.

En svo er spurning hvað á gera næsta laugardag???  Ég veit sko hvað ég geri !!!!

1. Vinna (bikarinn)  2. Kjósa um eitthvað deiliskipulag í Hafnarfirði  3. Láta fjölskyldumynda mig með tengdó    4. Hvetja Snæfell í DHL höllinni til fokking sigurs. 5. Enda svo bara út í dinner að kyssa konuna og kjammsa með Remy xo í annnnnarrrrri.

MONSI “farinn að sakna smá hang-over”

Skrifað í Blaður & Bull | 4 ummæli »

KEF vængbrotnir á báðum

Höfundur: monsi á mars 18, 2007

Skellti mér í Stykkis á fimmtudag og sá Snæfell sauma fyrir boruna á Kef, í fyrsta leik í 8 liða umferð úrslitakeppninar í körfu, þar ég keypti mér búnig Snæfells og var mitt gamla #9 fyrir valinu. Ekki nóg með það að þá fór ég líka til Kef á laugardag og sá seinni leikinn og Snæfell spretta saumunum upp og senda Kef í sumarfrí með glæstum sigri og vel skipulögðum leik, og átti Jón Ólafur (ekki Gerald Sullumdrullur) góða innkomu í 3ja hluta þar sem hann var með flugeldasýnigu að hætti hjálparsveit skáta sem skaffa ávallt klámið, en Magni, Hlynur, Justin, Siggi, Helgi, Martin og allir bara voru að gera sitt og það helvíti vel. 

 ”Show must go on” sagði hinn gaylíski Freddie úr Queen og fæ ekki betur séð en að mínir menn í Snæfell ætli sér einmitt það og eins og Freddie sagði líka “there´s only one direction” svo verður bara spennandi að sjá hverjir mæta þeim næst og verð ég á öllum leikjum það eitt er víst.

Jæja Robbie Fowler er að koma inná í leik Aston Villi frændi og Liverpool.

see ya´ll

monsi

Skrifað í Blaður & Bull | 4 ummæli »

Ný stofa? kannski??

Höfundur: monsi á mars 11, 2007

Er barasta að spá í að skella upp nettri hársnyrtistofu á Höfðanum eða á því svæði þar sem ég vann lengi og auglýsa svo í Árbæjar og Grafarvogsblöðunum. Er að kíkja á húsnæði og er að sjá fram á að þetta náist í sumar.

Spá í að hafa helst bara drop-in klippingar og annað í algjöru lágmarki, þ.e. litun, strípur og þessháttar stærri verk þó ekki verði komist hjá því að hafa það með.

Annars gengur þessi í Hafnarfirðinum fantafínt og verður maður að teygja sig á bestu staðina ekkert sem stendur í vegi fyrir því.

Hvernig finnst ykkur um það kæru lesendur???

Monsi “trickyfinger”

Skrifað í Blaður & Bull | 11 ummæli »

Bara svartar takk!

Höfundur: monsi á mars 2, 2007

Jæja þá fokkaði Snæfell upp einu liðinu í viðbót eða reyndar búnir að fokka 2 síðan ég skrifaði síðast. Tindastóll steinlá eins og nýrúnkuð geit á Króknum 104-73 og svo í kveld voru það Grindvíkingar sem hossuðust í rútu á Nesið og var hossað af Snæfelli sjóleiðina til baka 83-74. Svo verður svakarimma á móti Skallagríms mönnum í Hólminum á sunnudag og ætla ég að vera þar og verð búinn að pússa svívirðingarnar og hita upp kjaftinn fyrir þann leik.

Hvað er svo málið með gardínur og gluggafokkingstjöld?  Var að skoða bækling sem hent var inn um lúguna “Gardínur og álnavara 2007″ frá lakbrundalagernum sem er með allt í herbergið nema það nýjasta í byrgiskláminu.

Nema hvað að mig vantar svona þykkt dótarí sem ég ætla að setja fyrir opið á kaffistofunni á Cut. Er að leita að tilbúnum í svona 140×240-260 cm, svörtum, með ísaumuðum kósum (hringjum) sem sláin fer í gegnum “skiljiði”? Ok hélt að nú fyndi ég svoleiðis, en neeeeiiiiiii helvítis fokk það eru til: Klassískar rókókómynstraðar rauðbrúnar og bláar, Mosagænar og einhverjir rúnkupúðar með. Svo eru til rómantískar gardínur, eins og ég vilji kveikja á kerti og opna eina red í hvert sinn sem ég sé helvítis gardínurnar, já en reyndar er þær til í svörtu en með einhverju fokki ísaumuðu og glansa eins og nýdreginn þorskur úr sjó með silfruðu skveððððð. Ekki minnast á þessar “skemmtilegu og líflegu” ég er ekki að biðja gardínu óleysuna að syngja og dansa fyrir mig og hvað þá svo draplitaða með ég veit ekki hvernig blómalitum, svipað og einhverjir búningar á gay-pride með allri virðingu fyrir þeirri göngu.

En svo kom það “hey hér eru svartar og bara svartar”. Neibb helvítis liturinn heitir súkkulaðibrúnn. Fokk fokk fokk. Er í alvörunni hægt að hafa 15 tegundir af gardínum eins og ég er að leita af og enginn BARA SVÖRT.

En aftur á móti er konan mín æði og var hún að skýra út eitthvað fyrir Thelmu systur sinni og Soffíu vinkonu sem átti að hafa gerst um daginn en gerðist fyrir ári og vildi meina að það hefði annað hvort gerst á virkum degi eða um helgi. Hvar væri ég án hennar þessarar elsku. LUV YA.  Svo er Soffía alveg æðislega frábær líka (á lausu líka strákar)

Monsi “þurrka af´onum í gardínu”

Skrifað í Blaður & Bull | 6 ummæli »