Kíkið á þetta: VASELIN auglýsing
Og spáið í það hvernig Stykkishólmskirkja kemst eitthvert uppá tún í auglýsingu um Vaselin. Þetta er staðsett á 0:29-=0:32 sekúndu í myndbandinu.
Monsi “ekki með vaselin heldur KY”
Höfundur: monsi á febrúar 25, 2007
Kíkið á þetta: VASELIN auglýsing
Og spáið í það hvernig Stykkishólmskirkja kemst eitthvert uppá tún í auglýsingu um Vaselin. Þetta er staðsett á 0:29-=0:32 sekúndu í myndbandinu.
Monsi “ekki með vaselin heldur KY”
Skrifað í Blaður & Bull | 1 ummæli »
Höfundur: monsi á febrúar 24, 2007
Þetta hefur verið ágætis vika fyrir mig en ekki eins fyrir Frank Rijkaard framkvstj. Barcelona liðsins og Eið Smára sem töpuðu á heimavelli fyrir Liverpool 1-2 í Meistaradeild Evrópu og eru Poolarar að koma svo sannarlega sterkir í Evrópumót eins og sagan sýnir.
En svo voru Liverpool að skella Sheffield United 4-0 á Anfield með 2 mörkum frá Guði (Robbie Fowler) , Hyypia og ”The Royal” Steven Gerrard


En eins og Liverpool réttu strákarnir í Snæfell úr kútnum og tóku Hamar/Selfoss í Hólminum 83-60 í ósmurt meira að segja. Pistlahöfundur var á staðnum og líkaði vel og skellti sér svo ásamt spússu sinni í kaffi og kökur í foreldrahús. Með viðkomu á videóleigunni Ásnum var haldið í Hafnarfjörðinnán þess að fá vídeóspólu að láni þetta skiptið.

En að öðru, þá var ég að ræða það við annan mann sem er einnig áskrifandi af Skjásporti sem sýnir Enska boltann og setti svo Ítalska boltann inn líka. En Þrándur er í götu Steins og viljum við kalla það ”viðskiptalegt ofbeldi” eins og svo oft viðgengst hér á landi. Þannig er mál með vexti að ég geri bindisamnig við upphaf tímabils í Enska boltanum við Skjásport stöðina. Samningur slíkur er á þá leið að ég borga 1990,- á mánuði (2270 m/14% vsk) út tímabilið með svokölluðum bindisamning sem gefur mér einhverjar 500 afslátt á mánuði. En hvers vegna er þá allt í einu búið að hækka helvítis áskriftina um 500 kr. Sem er þá orðinn 2450 ,- á mán. (2725 m/ 14% vsk) og það án þess að maður sé látinn vita ástæðuna eða nokkuð, þeir bara smygla þessu inn eftir að samningurinn er gerður.
Einn sem ég þekki hringdi út af þessu og fékk upp gefið að þeir hefðu bætt við Ítalska boltanum. Ég gerði aldrei samning um annað en að borga 1990,- á mánuði sem var auglýst sem slíkt: ” áhugamenn um enska boltann fáiði lægri áskrift á 1990 út tímbilið með 9 mán bindisamning” og að bæta við Ítalska á bara að vera viðbót við þjónustuna.
Þetta er kannski ekki rosa peningur en mér finnst þetta ripp-off og svik á vöru miðað við auglýsingu og svo segir emginn neitt láta þetta bara viðgangast. Held líka að menn séu eitthvað vonsviknir yfir að hafa misst sýningarréttinn á Enska boltanum yfir til Sýnar næstu árin.
Hafið þið fleiri dæmi um svona? Endilega tjáið ykkur og veriði brjáluð þarna bússurnar ykkar:)
Monsi. “samt ánægður með Sýna”
Skrifað í Blaður & Bull | 2 ummæli »
Höfundur: monsi á febrúar 19, 2007
Gaman að segja frá því að Liverpoolmenn eru nú að gera sig klára fyrir Golfvertíðina og æfa sig grimmt en ekki á golfvöllum eins og hin venjulegi borgari. Nei þeir eru nefnilega að berja hvorn annan, aðallega Bellamy að æafa sig á Riise en að er bara að því að hann er Norðmaður, og svo er Bellamy ekkert voðalega heill í hausnum en hann skorar mörk svo að þá er þetta bara í lagi
Þá er 10 daga foreldra/barnapíu hlutverki lokið þar sem við vorum með allann pakkann hjá systur hennar Ninnu á meðan hún og kallinn skelltu sér á eyju rétt norðan við Madagaskar.
En annars er bara Snæfell – Hamar/Selfoss í hólminum á fimmtudaginn og það er í skoðun hvort við kíkjum. Annars kom nú Helgi í klippingu til mín og vildi halda smá lubba fíling og er drengurinn nú bara með þeim fínni um hárið í deildinni ásamt Sven Davids.
Klám, aldrei að vita en að það verði bara mynd með Hótel Sögu sem sögusvið næst þegar maður skellir sér á leiguna. Það halda femínistar allavega. Ég meina það, á að spyrja alla ferðamenn sem koma til landsins til að skemmta sér hvort þeir ætli að ríða og taka það upp. Þetta er bara þeirra vinna. Get nú ekki betur séð að það sé ekkert verið að þvinga þessar kellingar til eins eða neins hvorki að framan eða aftan. Fjaðrafok út af engu þar sem fólk er bara að koma saman og er meðvitað um lög gegn framleiðslu kláms og þesskonar mynda á Íslandi. En ef eitthvað er til í þeim staðhæfingum Stígamóta að mannsal, barnaklám og þess háttar þá er ekki spurning um annað en að loka á þetta.
Eins og með álverið í Straumsvík fyrir 40 árum þá varð allt böll-sjóðandi vitlaust eins og núna, en eftir 1 ár var ánægjan slík með þetta að fólk bara átti erfitt með sig af hamingju. Nú tækninni hefur fleygt fram svo um munar í aðgerðum gegn allri mengun sem er hægt að flokka í bæði loft og sjón. Og það er margbúið að tyggja þessa mengun til og frá og hún er engin miðað við Skorradalinn.
Ég vill leyfa stækkun álvers í Straumsvík. http://alcan.is
Í fyrsta lagi áttu einfaldlega þeir sem eru kosnir hér til að stjórna að taka af skarið og leyfa þetta deiliskipulag, enn ekki að vera að firra sig einhverri ábyrgð og segja ætla að gæta hlutleysis í málinu svo er sagt að Sjálfstæðisflokkurinn sé stefnulaus í þessum málum, hefði haldið að þeir væru fylgjandi. Sumir ættu að sjá til flokksbræðra sinna í Hafnarfirði sem vilja ekki taka afstöðu og setja þetta í kosningu, sem er gott að mörgu leyti og er ekki ég að gagngrýna hana. Spurningin er bara sú hvort við séum að kjósa menn til að stjórna og taka ákvarðanir eða gætir klofnings……. Hér er gripið í línu úr http://www.xshafnarfjordur.is/frettir/birta_frett.asp?id=757
“Bæjarbúar líkt og félagsmenn Samfylkingarinnar hafa misjafna afstöðu til þeirrar deiliskipulagstillögu sem nú liggur fyrir og kosið verður um.
Samfylkingin í Hafnarfirði mun ekki taka flokkspólitíska afstöðu með eða á móti stækkun álversins í Straumsvík. Félagsfundur Samfylkingarinnar hvetur íbúa Hafnarfjarðar til að kynna sér vel öll sjónarmið og upplýsingar sem snerta þessi mikilvægu mál og fjölmenna á kjörstað þann 31. mars n.k.””
Ég hefði þá alla vega viljað fá að kjósa um hvort ég vildi hærri fasteigna og þjónustugjöld og hvort hefði ekki verið nær að setja nýju sundlaugina í Setbergið, ef ég að kjósa um hvort ég vilji 800.000.000,- tekjur til bæjarins og meiri atvinnu beina eða óbeina, eins og það sé ekki alveg ljóst.
Monsi “strípur í ÁLpappír á tilboði”
Skrifað í Blaður & Bull | 3 ummæli »
Höfundur: monsi á febrúar 7, 2007
Nígería steinlá fyrir Ghana 1-4 í vináttulandsleik í fótbolta í gær fyrir þá sem halda með þeim og í leiðinni að hryggja Snæfellsstrákana með fjarveru minni á leiknum á morgun en mæti galvaskur í Njarðvík á Sunnudag en 1 leikur í einu og hafa gaman af þessu, brosa.
Svo endilega kíkið á þennan er með link á honum á síðunni ásamt öðrum áhugaverðum bloggurum, en þessi …vá…
http://haglabyssa.blog.is/blog/haglabyssa/
En annars sá ég skemmtilega frétt í Fréttablaðinu í dag.
Til grimmilegra átaka kom í heimahúsi á höfuðborgarsvæðinu aðfaranótt sunnudags. Forsaga atburðarins er sú að tveir menn buðu þremur stúlkum með sér heim eftir að hafa hitt þær á skemmtistað. Fór vel á með fólkinu, sem leiddi til þess að annar karlmaðurinn og ein stúlknanna fóru inn í herbergi í íbúðinni. Parið í herberginu fór að láta vel hvort að öðru, en þegar lengra dró og stúlkan hóf að fækka fötum kom í ljós að hún var vaxin niður sem karlmaður.
Við þessa uppgötvun trylltist maðurinn, réðst á gest sinn, barði hann og tók hann kverkataki. Hann hafði haldið takinu drjúga stund þegar gestur hans náði taki á járnstöng og barði hann í höfuðið. Við höggið losaði maðurinn takið, en hann hlaut stóran skurð á höfuðið, sem þurfti að láta sauma.
Aðrir íbúar í húsinu kölluðu á lögreglu skömmu eftir að atgangurinn hófst. Maðurinn gaf síðan skýrslu í gær, en umræddur gestur hans hefur lýst því yfir að árásin verði kærð til lögreglu.
Skil ekkert í honum að vera ekki opinn fyrir nýjungum og láta bara vaða, eitt bjúga til eða frá. Crying game hahahaha
Svo er spurning um Færeyinga, þeir hafa áhyggjur af því að Jógvan detti snemma úr keppninni í X-factor vegna þess að hann er ekki Íslendingur samkv. Fréttabl. Ég segi bara við ykkur Færeyinga að þið þurfið ekki miklar áhyggjur að hafa því að góðann dreng hafið þið alið og svo eru íslensku kellingarnar crazy í svona stráka sem eru af erlendu bergi brotnir og kjósa hann grimmt og svo eru ábyggilega einhverjir hýrir drengir sem langar í eitt eintak af honum. Svo er hægt að lesa hvað Færeyskir miðlar segja hérna
http://www.portal.fo/planet/?page=news&grein=36533
Atkvæði einstæðra kynþroska svellgraðra húsmæðra úr vesturbænum og alla leið í Breiðholtið eru ótrúlega máttugri en ykkur grunar, þótt víða væri leitað. skkvveeeððð
Þið vitið hvernig þið eigið að fá þær til öskra tvisvar, sko húsmæðurnar???? Kvittiði í “comment boxið” svo þarna þið..fcbtmofo…
Monsi “ekki kynþroska, en svellgraður og orðinn alveg snar”
Skrifað í Blaður & Bull | 6 ummæli »
Höfundur: monsi á febrúar 3, 2007
Sko það eru nokkur atriði sem ég þarf að koma inná hérna. Byrjum á smá leik: Hver stal kökunni úr krúsinni í gær nr 1 stal kökunni…..skkveeeeðððð!!
Soffía hérna eru linkar fyrir þig um reglur í körfunni og byrjaðu svo lesturinn. Legg til að þar sem sýndar eru myndir af dómurum tilgreina merki um dóma sína, þá er ágætt að standa upp og fá fílinginn sjálf og gera líkt og myndirnar sýna. Já og svo á ég flautu ef þú vilt. http://www.fiba.com/pages/en/aboutfiba/downloads/rules.asp http://www.kki.is/leikreglur.asp
Svo er það Eurovision snilld að Pétur, Einar og Matti komust áfram aftur. Þetta er skemmtilegur fílingur í laginu sem Heiða úr Unun syngur. Skemmtilegt jájájájájájájájájájájájájájájájajájájajájájá
Svo endilega kíkið á þetta: http://www.ja.is/gulu_sidurnar/query=Cut Smellið á “kort” og þá vitiði hvar þetta er sniðugt á Íslandi DF.
Sko ég er fótboltaáhugamaður almennt þar sem ég get horft á kvennaboltaleiki líka ásamt leikjum úr flestum deildum í heiminum en http://www.fotbolti.net/fullStory.php?id=44209 já þetta er full mikið af því góða.
Annars er bara allt gott. Nema mig langar svo að vera í New York á morgun buuuuu. Snilldarborg og þangað ætla ég að bjóða konunni fljótlega, fyrst þorrablótið klikkaði því Ninna ætlaði mað mér svo að ég yrði ekki rændur með byssu í Chicago aftur, Ninna my Lifeguard hún er best og sætust og mússí mússí.

Monsi “New Yorker MF” og hafiði það svo bara grefilli gott bússurnar ykkar
Skrifað í Blaður & Bull | 2 ummæli »
Höfundur: monsi á febrúar 2, 2007
Þegar Bjössi Geir hringdi og spurði hvort ég kæmi í körfu og ég sagði að ég væri kominn í Þorlakshöfn á leik hjá Snæfell og hann sagði sjáumst þá bara á laugardaginn og meinti þá að ég sæi hann en hann ekki mig, þá var hann meina í sjónvarpinu á Skjá-sport, í leik Liverpool – Everton þar sem hann og félagar sitja 1st. row KOP. (Þeir skilja sem vita.) Þá sgði einfaldlega fu.. shi…djö…ras…og pí…dru..br.. en óskaði honum svo góðrar ferðar og læt mig dreyma um að fara á Anfield one fine day.
Og svo helvíti hrikalegt og er ég nú rólegur maður svona allajafna en þegar mitt lið tapar í einhverju sama hverju og hvort ég er að spila með eða ekki þá verð ég frekar fúll og ósáttur. Þannig að Snæfell tapaði fyrir hungruðum Þórsurum frá Höfn Þorláks. Mínir menn voru bara ekki mættir á svæðið kannski ennþá á Litlu Kaffistofunni í kók og prins. En svo er það annað mál að óbilandi trú hef ég á strákunum að snúa við blaðinu eftir viku þegar þeir fá ÍR á nesið. Við tökum þá í nesið.
En Soffía og Ninna voru í stuði
Myndalegir andskotar þessir Snæfellingar!!!!

Eftir að hafa skoðað málið nánar, farið á Snæfellsleiki og horft á ”My name is Earl” 1 seríuna á maraþoni þá komst ég að þessari tvífaraniðurstöðu
Nonni Mæju og Jason Lee a.k.a Earl Hickey
, alla vega snilldar gaurar báðir tveir.

Þetta helvíti fínir þættir.
En annars er ég bara brattur Gauti. Stofan er að ganga og er það erfitt að koma þessu af stað og á kortið svona fyrsta árið en ekki svo erfitt samt bara gaman og krefjandi erfitt en þetta er allt á uppleið að sjálfsögðu og það verða fleiri en ein CUT hárstúdíó á Íslandi eftir X-tíma. Kannski rétt hjá þér lesandi góður. -Prepear for compatition- Ég bara tæki ekki annað í mál en að þetta yrði eitthvað stærra. En svo er kallinn bara hress farinn að sprikla í körfu og bara hvað viltu vita Gautó autó hahahah

Reyndar fór Stefán frændi minn til Chicago og er þar núna að fara að spila á þorrablóti eins og við gerðum í fyrra. Okkur var boðið aftur en vegna gífulegra vinsælda sem hársnyrtimeistari á CUT hárstúdíó þá bara ómögulega komst ég helv….djöö..ands……. mig langaði drullu mikið. Ég meina hei hvern langar ekki til Chicago að spila á þorrablóti og fara svo til New York og vera þar í nokkra daga chilla, drekka red, fá sér steik, humar, fara á NBA leik t.d. eins og ég ætlaði. Það verður sem sagt NY.Knicks vs L.A. Clippers á þriðjudaginn. Og var svona – langt frá því að skella mér og Ninna líka. But we´ve got buisness to run.
’Ég hefði fengið sæti c.a þarna hægra megin á myndinni svona um miðju shit það hefði verið stuð.
Jæja nennekkussu að vera að þessu skriferíi lengur en það hefði líka verið gaman að komast til Danmerkur nánar tiltekið Söndeborg og spila þar Gauti minn takk fyrir frábært boð og að hugsa til mín hefði haft gaman af að aðallega hitta kallinn, því þegar ég geng í svefni ofurölvi þá sakna ég þín……..
Monsi “mígandi út um allt” híhíhí
Skrifað í Blaður & Bull | 2 ummæli »