Jæja hér er ein ferðasaga til lesningar.
Þetta byrjaði allt þegar við giftum okkur hjónin og áttum svo eins árs afmæli. Við fengum nefnilega að gjöf helgargistingu með morgunmat á hótelinu Frost og Funi í Hveragerði. Við skelltum okkur þangað liðna helgi og vorum við hæst ánægð með þá helgarreisu í rólegheitum með sundlaug nákvæmlega 3 metrum frá herberginu og svo er gufa og pottur steinsnar þaðan. Skelltum okkur í humar Við Fjöruborðið á Stokkseyri á laugardagskveldið og tókum spólu í Tíunni í Hveró og næs. Í Hveragerði er hægt að fá fínt bakkelsi í Hverabakarí og eyða dágóðri stund í Álnavörubúðinni sem er skemmtileg búð svo fátt eitt sé nefnt, og er þetta bara svona fínasta rólegheitar pleis og er hægt að láta sér líða voða vel þarna. Svo vel að Hvergerði átti eftir að koma við sögu í okkar lífi oftar þessa vikuna.
Þannig er mál með vexti að á mánudeginum var rokið til eftir vinnu, eins og gerist þegar Snæfell er að spila, og vorum við eitthvað sein til þar sem leikurinn við Hamar/Selfoss átti að byrja 19.15 og klukkan var 18.45 þegar út við gengum. Í snarhasti við austur ókum heiðina háa og hála í slyddu og snjó. Og er við lentum í Hveró (svo maður tali soldið native) þá vorum við að sjálfsögðu búin að spotta íþróttahúsið um helgina til að sem minnstum tíma yrði sóað í leit. Inn var hlaupið og var þessi fínasti BLAK-leikur í gangi. Nú upphófst hjartsláttur mikill og móðursýki gerði vart við sig og í flýti og hasti innti ég næsta dreng eftir svörum um hvað orðið hafi um leikinn, “já körfuboltaleikinn, hann er á Selfossi er það ekki?” Auðvitað ,úúúúffffff maður, er hann á Selfossi bless ég bruna þangað.
Í hendingskasti í c.a 25m/sek rokrassi undir Ingólfsfjalli var arkað á Selfoss og kl um 19.40 aha ég veit alveg hvar íþróttahúsið á Selfossi er ha ha ha ha. Á bílaplanið spólað og spænt og liggur við inn í hús, út úr bílnum hið snarasta og inn í húsið þar sem hálfleikur hefði átt að vera en BÚMMMM. HVAÐA HELVÍTIS þarna sátu 3 Hamars menn og spjölluðu og móðursýkin heltók mig eitt andartak. Gæti verið að það sé búið að fresta leiknum ÓJÁ svo staðfesti húsvörðurinn.
Um þetta er ekkert að ræða meira en heim á leið var haldið um Þrengsli og beint í Fjörðinn og ekki orð um það meir. Lærdóm má draga af þessu og hann er sá að mikill metnaður er lagður í að mæta á leik hjá Snæfell sem er gott því styðja þarf sitt lið og ekki bara á leikdegi heldur alla daga. En fall er faraheill og eins og okkur leið nú vel í Hveragerði skeltum við okkur þangað strax daginn eftir á þriðjudeginum þar sem leikurinn fór fram og ekki var að spyrja að því að Snæfell fór með sigur af hólmi eða í Hólminn 79-77 eftir harða baráttu við heimamenn og naumt var það en þess virði.
Monsi 