Tékkið á þessum nafngiftum um hægðir.
Archive for október, 2006
Snæfell, Hvalur og kjaftæði
Höfundur: monsi á október 23, 2006
- Jæja körfuboltinn byrjaður að rúlla og voru Snæfellsmenn lagðir af KR 83-79 á föstudag. Svo tóku Snæfellingar á móti Fjölni úr Grafarvogi á sunnudag og þar við sat 67-60 sigur Snæfellsmanna og dróu fyrstu 2 stigin í hús þar sem sigur var þannig séð ekki í hættu. Svo á fimmtudag komandi legg ég leið mína á Ásvellina þar sem Haukar taka á móti Snæfell og er þar með orðið ljóst að það er Snæfell sem ég styð og reyni að fara á flesta leiki með. Ætla reyndar að kíkja á ÍR leiki einhverja þar sem Bárður, áður þjálfari Snæfells, er við stjórnvölin og jafnvel Hauka þar sem stutt er á völlinn.
Hvala tal er þetta endalaust um hvalveiðar og hleranir. Djöfulsins rugl er þetta eiginlega. Sko hleranirnar eru síðan einhverntímann í helvíti og hvað er hægt að gera í því í dag annað en að yfirheyra og kjaftæði. Spurnig um að andkotast til að reyna að sinna brýnni þörfum í þjóðfélaginu en að eltast við Jón Baldvin og rugl. Betra væri að tékka á því hvort hlerað sé í dag.
Svo er það þessi andskotans manndrusla Paul Watson sem kennir okkur við Norður-Kóreu. Djöfullinn sjálfur ef við ættum eina langdræga þá færi hún beint í rassgatið á honum. Kannski ráð að tala við N-Kóreu menn. En nú er þessi fjandi að koma og eigum við, af reynslunni að dæma, að stoppa hann strax og láta hann ekki komast upp með neitt kjaftæði. Svo er spurning hvort USA eigi ekki bara að hoppa upp í rassgatið á sér, stærsta hvalveiði þjóð heims og er á móti hvalveiðum okkar. Hvað með mannfólksveiðar þeirra??? Nei það er allt í lagi að því það er bein ógn við þá. En hvað vita þeir þá um okkar þorsk, loðnu og síldarstofna og að hvalurinn er kannski bein ógn við þá þó að það sé kannski ekki 100% markaður fyrir hann. Skiptir ekki máli. En þrátt fyrir það þá hljótum við að geta gert það sem við þurfum til að komast af og verja okkar hagsmuni innan 200 mílna línunar. Það er ekki eins og við séum að veiða helvítis hvalinn í kringum Japan eða Ameríku nei. Svo ef að menn ætla að mótmæla hvalveiðum einhverstaðar úr fjarlægum löndum þá eiga þeir að líta sér nær til að byrja með og hætta að vera einhverjar andskotans heimslöggur við getum alveg séð um mótmælin sjálf hérna heima og þetta kemur öðrum andskotan ekkert við.
Fyrir það fyrsta þá heldur helmingur Ameríkana að hvalurinn sé svona sætt dýr sem maður getur klappað og kúrt með uppí rúmmi og í annann stað hafa þeir ekki hugmynd um að það séu til fleiri staðir æðri en þeirra í heiminum. En guess what það eru kannski bara farið á þyrlum með fram ströndum á vetsurströnd Bandaríkjanna og höfrungar dritaðir niður í þúsunda tali, akkúrat eitthvað svona Rambo style, ekta Kaninn. Og til hvers? Jú einmitt til að sporna við ónýtum veiðarfærum og svo að hægt sé að veiða einhvern fisk þarna úti. Fokking hálfvitar að halda líka að þetta komi niður á ferðamönnum. Sá ekki betur en að túristinn hópaðist í Hvalfjörðinn í fréttum sjónvarpsstöðvana þar sem þeir voru að taka myndir skælbrosandi yfir þessu öllu og fá mynd af sér með dauðum hval á Íslandi rosastemming. Þá er bara fyrir ferðþjónustuna að prómótera Hvalfjörðinn, með hvalkjöt á tannstöngli, lýsi og íslenskt brennivín. Ég er leiður á þessu hvalatali, það hlýtur að vera hægt að koma öðrum málum til framkvæmda í þessu landi en að þvaðra um hvali og hleranir.
Jæja ég nenni ekki að rífa kjaft of mikið, það er hollt að puðra út smá helvítis og andskotans við og við. Og það gæti líka einhver verið að hlera!!!!!!!!!!!!!! En hvað segið þið? Er eitthvað sem ykkur finnst þið þurfa að segja??
Verð á léttari nótum næst. Andskotinn það fer mér ekki að drulla svona á móti vindi og þá sérlega ekki frussukúk.
MoNsI “er að verða léttari”
Skrifað í Blaður & Bull | 2 ummæli »
XXXXXXXXXásinnXXXXXXXXXXX
Höfundur: monsi á október 20, 2006

Já það er nú svo að Kári bróðir skellti sér bara á myndaleiguna í Stykkishólmi og keypti kvikidið. Þannig að ég ætla að fara núna í hólminn um helgina og er búinn að panta Da vinci code fyrir laugardagskveldið. Ekki amarlegt það með rauðvíni og ostum. Svo verð ég orðinn heitur eftir redz og vill fara á pöbbinn og verða waisted eða bara sofna eftir fyrstu 10 mín af myndinni og geri ekki jack. Eins og þegar við frændagússin ég og Stebbi vorum í New York fyrr á þessu ári og vorum á leiðinni upp á Hótel eftir bæjarrölt og nokkra kalda, komum við í kjörbúð rétt hjá, ekki ólíkt blessaðri Krambúðinni á Skólavörðustígnum, jæja keyptum kippu af Corona (man það allavega) og skelltum okkur á Walk the line á pay perview-inu. Ég sem sagt setti í mig einn og sofnaði eftir 10 mín og varð bara að bíða þar til hún kom á Snælandsvídeó í Setberginu til að klára það mál. já gamannmanaana.
Talandi um manamana dududururu þá rifjast upp fyrir mér að ég skellti mér í X-factor áheyrnaprufur bara svona til að gera eitthvað sniðugt annað en að horfa á fótbolta. Þetta manamana dududururu var hann Geiri eðalmenni og söngvari raulandi við og við og vorum við næstum því búnir að skrá okkur sem dúett og taka þetta. En eftir forval á laugardegi fékk ég að snúa aftur til að mæta aðaldómurunum á sunnudagsmorgni kl 8 og hef ekki vaknað svona snemma á sunndegi í svo langann tíma að ég eiginlega skammast mín (fyrir að vakna en að sofa lengur). Right sko að vera mættur kl 8 um morgun og syngja svo ekki fyrr en um kl 21.30 er bara fokkings bilun en samt bara allt í lagi. Ég var númer 5110 sem er eiginlega bara 110 og var farið eftir nr.röð á laugardeginum sem gekk hratt fyrir sig en á sunnudeginum var random-röð og var ekki settur upp listi fyrr en eftir að c.a. 50 manns voru búnir og það voru 4-5 tímar.
Anyhow you s-cum sucking bitches þá var maður orðinn chillaður bara og búinn að fara og fá sér næringu og fara í sturtu og hressa sig við. Loksins var kallað ”nr 5110″ og þá fór nú allt í gang viðtal við Höllu “sætu” Vilhjálms og svo bara inn og syngja og svo bara út og allt búið. Ég söng “Ég er að tala um þig” sem ég söng í brúðkaupinu. En ég var reyndar pínu flatur í háu tónunum og Palli vildi það ekki neeeiiii %&/##$%( en Ellý vaknaði við sönginn sagði hún og Einar var eitthvað að röfla um hvað Bó myndi segja ef hann myndi hringja í hann daginn eftir. Og var sem sagt aðallega í því að monta sig yfir að þekkja Bó. En öll voru þau sammála um að ég gæti nú sungið þó þeim hafi fundist þetta heldur stórt lag fyrir lítinn Brokeying en sögðu nú Palli og Ellý reyndar nei og var Einar eitthvað ekki viss og var utan við sig eitthvað og vissi ekki að það væri komin 2 nei og þegar hann fattaði það þá var lítið annað að gera en að þakka fyrir sig bara og vera bara í stuði sko. Sem ég var því þetta var nú bara ágætis skemmtun fyrir mig og sem betur fer þá held ég að ég komi ágætlega út úr þessi stuðhoppi mínu þarna.
Eitt er víst að í forvalinu þá söng ég fyrir Kristjönu Stefáns söngkonu sem mér finnst mjög góð og væri ég alveg til í að komast í læri til hennar þ.e. sko að læra söng hjá henni ekki lambalæri eða þannig sko heldur vera lærisveinninn Símon í söng held ég hefði bara gott af því . Já veistu ég held það bara. Jú er bara nokkuð viss. En svo var ég að fá núna sms frá Geira sem komst áfram á sunnudag að hann var að detta út núna fimmtudagskv.19/10´06 þar sem allir voru á Flúðum í frekari niðurskurði en Færeyingurinn Jógvan Hansen sem er klippari líka og vann með Ninnu á Toni&Guy komst áfram í áfangann á morgun, hann er fínn söngvari og spilar á fiðlu líka.
En ég er að sofna og finnst þetta alveg ágætis lestur fyrir ykkur í bili ekki of mikið í einu danke schön og reyniði svo að commenta þarna fólk já og þa strax ég veit hver þið eruð og get sagt um nákvæmlega hver skoðar og leggur ekki inn comment svo að endilega svo að ég nenni þessuhahahahahahahaahahha
Var fiðlarinn fljúgandi á þakinu Færeyskur??
monXi
Skrifað í Blaður & Bull | 7 ummæli »
Sölumaður dauðans
Höfundur: monsi á október 10, 2006
Halló ert þú strákur eða stelpa?
Var að velta fyrir mér sölufólki. Þannig er að ég tók mig ti lvið að skipta um merki á litalagernum hjá mér og er einföld ástæða þar sem 60ml túba er á 12 kr meira en 100 ml túba sem ég kaupi núna. Hallo ég fæ 40 ml meira fyrir 12 kr minna og þar að auki kemur það ekki niður á gæðunum. En svo eru sumir sem eru að reyna að selja svo mikið. Ég lenti einmitt í einni svoleiðis og var ég rétt búinn að fá 77 liti í hilluna af nýja dótinu og af því gamla átti ég um 130 litatúbur og um 70 í skol-litum. Ég var sem sagt ekki í hugleiðingum að skoða fleira og kom því kurteisislega til skila hvernig væri ástatt hjá mér en neeeiiii. sö=sölubelja M=monsi
sö:”viltu ekki velja einhverja liti úr litaspjaldinu og prófa” M: “nei takk ég er bara ný búinn að fá svo mikið af litum sem ég þarf að prófa betur og komast inní og tala nú ekki um gamla lagerinn sem þarf að nota líka “ sö: ” æiii gerðu það ekki bara aðeins til að prófa, ekki vera leiðinlegur” M
hugsar: er hún bara klikk) “nei takk verð bara að vera leiðinlegur hef ekki áhuga eins og er” sö
segir brosandi en móðursýkin er að yfirbuga hana) “ok en ég get sagt þér það….”
Akkúrat þarna sprakk öryggið í mér og ég eiginlega dró fyrir gluggann og ákvað á þessari mínútu myndi ég ekki kaupa eitt einasta stykki af henni ever þó hún lægi í andnauð í drullupolli. Þetta var sem sagt eigandi heildsölunar sem var þarna að reyna að selja mér liti. Það sem fyllti mælinn á eftir þessu “en….” var að hún þurfti að reyna selja mér sína vöru á kostnað þeirra sem ég var að kaupa af og varanna sem ég sel og er bara nokkuð ánægður með, nei en hún hefði komið með sína vöru samdægurs ekki daginn eftir (sem sýnir hvað er lítið að gera hjá henni) og þetta væri svona og bullshit
M
hugsar: mikið djöfull er þessi tuðra að fara í taugarnar á mér, hvort á ég að sparka henni út að framan eða aftan), en á endanum sagði ég henni einfaldlega hvað söluhæfileikar hennar væru litlir og að skíta yfir þær vörur sem ég var að kaupa og grafa undan mínu áliti, ágæti og trú á því sem ég hef á því sem ég er að gera með þær vörur sem ég vinn með var alveg til að segja STOPP og að hún gæti einfaldlega aldrei selt nokkrun skapaðann hlut eins og hún var að reyna með þessari frekju og ágengi. Thank you very much have a coke and smile and get the fuck out ef here.
Ég meina pælið í því þá loksins gafst hún upp, en á leið sinni út sagði hún sö:“við vorum að fá nýtt gel má ég henda í þig einni dollu til að prófa” ég stóð og horfði á hana og sagði bara “ok” tók dolluna leit á hana og um leið og stelpan var að labba út gekk ég að ruslinu og lét gelið gossa. Mikið rosalega komst ekkert inn í hausinn á henni þegar tók ræðuna á hana og mikið rosalega er það sjaldgæft að ég haldi ræður miklar. En svo er nú það já já býsnin öll.
Sumir hafa verið með lag dagsins en ég læt bók dagsins fylgja í þetta sinn og er hún: Death of a salesman e: Arthur Miller. Las hana í ensku 303 og man ekkert. Bless bless.
Monsi “syngjandi sveittur”
Skrifað í Blaður & Bull | 3 ummæli »