Höfundur: monsi á júní 14, 2006
Ef einhver finnur Valla á síðunni þá endilega látið vita??

Mikilfengleg verðlaun í boði. Eins og pulsa og kók á Jolla í Hafnarfirði. Og einn öl á bar satans næst þegar ég fer í bæinn eða einhverntímann í framtíðinni. Annars var nú bara gaman hjá okkur Ninnu og Villa frænda á laugardaginn. Fórum á Ruby Tuesday og svo heim í trivial og öl, já og líka eðal Remy Martin xo beibí, já það er sko dýrari týpann í firðinum. Svo var haldið niðrí bæ þar sem kíkt var á bar satans, sem stendur fyllilega undir nafni. Hef ekki komið þangað lengi, hólý shjitt hvað það er mikið af liði á hraðri niðurleið til satans og have fun people. Annars hittir maður einhverja sem maður þekkir og ætluðum við bara að mæla okkur mót þar til að byrja með, við Ninna og Villi, Svenni og Arnar, svo hitti ég Ingvar (mark ruffalo) sem er ævinlega gaman að sjá, og bara stuð.
En ég hef eiginlega ekkert merkilegt að segja nema kannski ætti ég að hugsa alvarlega minn gang þar sem ég gleymdi mér og fór EKKI á Roger Waters. Já fór EKKI!!!! DJÖFULL SÉ ÉG EFTIR ÞVÍ NÚNA.
KV.MONSIDJÖFULLAÐFARAEKKIÁTÓNLEIKANAEINSOGMIGLANGAÐINÚAÐFARA.
Skrifað í Blaður & Bull | 11 ummæli »
Höfundur: monsi á júní 10, 2006
Ég á ammæli í dag já ég á ammæli í dag já ég ammæli ég monsi já ég á ammæli í dag.
Þetta ætlar bara að verða ágætisdagur, gott slökunarbað, bakkelsi og afmæliskaka af súkkulaðigerð með perum á milli og gotterí. Nú svo er HM byrjað og fylgist ég nú ekkert mikið með boltanum (je right) en kíkti aðeins á Englendingana vinna Paragvæ og síðan er Svíþjóð vs Trinidad&Tobago, verð kannski með annað augað á honum.
Konan bauð mér í miðnæturleikhús í gær þar sem við sáum Fullkomið brúðkaup sem er bara alveg fínasta skemmtun. Og svo er komið að ykkur að muna hvað ég er gamall???? Ekki erfitt fyrir þá sem mig þekkja en svona til gamans.
Ég ætla ekki að pirra mig og vera með pistil um Óríkisstjórnina okkar og Framsóknarflokkinn sem einhvern veginn virðist vera óframsóknasti flokkurinn í dag. Kannski næst verð ég með uppsafnað blaZt um það og kannski ekki ef ég kem niður á jörðina. já já blablablabla
Og svo ætla ég að leita að tvíförum áfram þ.e einhver "celeb" og einhver sem ég þekki. Sem sagt þá var Ingvar Valgeirs fyrir valinu og átti ég ekki mynd af honum til að sýna ykkur en þeir sem þekkja eðaldrenginn og gullfingurinn fatt´etta. En það var Mark Ruffalo sem svipaði til hanns þarna. En hér ætla ég að prófa Jón Ágúst og Colin Farrell. Heil og sæl.


ps. soldið seint að setja það inn samdæurs en er svona að spá í öli kannski í kveld og ef einhver er í filing þá er commentboxið opið fyrir hugmyndum íííí´´i´hahahah
kv Monzi. "þegar grái grípur mann"
Skrifað í Blaður & Bull | 6 ummæli »
Höfundur: monsi á júní 2, 2006
Ég var að horfa á mynd og eitthvað kannaðist ég nú við þennan…


einhverjar hugmyndir um hvað hann heitir aftur????
kv Monsi
Skrifað í Blaður & Bull | 12 ummæli »