Höfundur: monsi á maí 31, 2006
"Monsi blámaður" sagði Ingvar Valgeirs í einu kommenti sínu og lýsti ánægju sinni yfir minni pólitísku gönguleið. Kannski ástæða fyrir því að síðan hérna hefur bláann lit. En í rauðum bæ bý ég og er frekar hissa á verulega slöku fylgi hægri flokksins í Hafnarfirði. Ég gerði mitt besta til að gefa þeim allavega eitt atkvæði en allt kom fyrir ekki svo að það er greinilegt að fólk hér í bæ vill miklar skuldir, há fasteignagjöld (sem verða pottþétt ekki lækkuð á næstu 4 árum) sjáiði bara til og svo háa skattaálagningu. Svo ég tali nú ekki um það fylgi sem Vinstri grænir fengu og held ég að fólk sé að tapa sér með því að styðja að ekki verði stækkað álver, að engar verði tekjur á móti öllum öðrum framkvæmdum og uppbyggingu sem horft er til og svo eftir 4 ár "æijá bara gleymdist".
Stækkun felur einfaldlega í sér tekjur og aukna atvinnu en Vinstrimenn tala bara um að vera á móti og ætla svo að fara að tala, í einhverjum pappírspésa, um mannauð BLOODY SHAME. Það er sem sagt bara mannauður að skapa enga atvinnu og vera bara úti og horfa á grasið? Ég spyr.
Jæja allavega er ég ekki sannfærður því þetta með mengunina sem þeir tala um líka þá er það einfaldur hræðsluáróður. Nóg er til af reglum og góðum tækjabúnaði sem nota skal við að halda mengun niðri, nú annars hljóta menn að vera dregnir til ábyrgðar ef kröfur ekki standast og sektir hljótast vitanlega. Shit maður ef vinstri menn færi með umhverfisráðuneytið, þá fengi ég ábyggilega ekki að rúlla torfunni af þessum 15m2 bletti mínum og setja pall yfir svo ég geti grillað á GAS-grillinu mínu og borið fína og góða viðarvörn sem Bergur Geirs auglýsir svo vel frá Byko því forstjóri Byko er jú Sjáfstæðiskona og allt er þetta mengandi. Ég má kannski bara passa mig þar sem ég er að setja af stað fyrirtæki hér í bæ. Og pallurinn fer upp sama hvað raular og tautar
Nóg af því, en mínir menn héldu velli í Stykkishólmi og juku dulítið á fylgið frá því síðast. Hvaðan komið þið að ykkar pólitík kæru lesendur? Því nú þarf að fara að vera viðbúinn því það er ár í alþingiskosninar. íííí´hhhaaaaa
En ég má bara ekki vera að þessu tauti því ég þarf að fara borga einhverja aura í stofu og fá afsalið. Kannski ég gangi á Esjuna á morgun mér til heilsubóta, fagnaða og kannski til að njóta áður enn við skellum einhverri sniðugri stóriðju á hana hahahahaha.
Monsi " í prófkjöri 2010 hjá xD í Hafnarfirði"
Skrifað í Blaður & Bull | 4 ummæli »
Höfundur: monsi á maí 30, 2006
Jæja þá fer allt að verða klárt og við búin að kaupa stofu í Hafnarfirði. Stofan er staðsett við Lækjargötu 34 og heitir G-tveir. Það nafn á eftir að breytast í Hársnyrtistofan….???… já nú er sko að bíða og sjá. Við höfum sem sagt valið nafn og hefur verið lokað fyrir kjörstað á þessu máli. Nafnið er stutt og bara þægilegt já gaman að því.

En að stofunni aðeins, þá fáum við hana afhenta laugardaginn 3. júní og verður fyrsti opnunardagur þriðjudaginn 6. júní. Óákveðið er með svona opnunateiti og slíkt en eitthvað hlýtur það að verða með tímanum þegar allt er komið í gang og breytingar á nafni og fara af stað.
Tímapantanir verða á öllu á stofunni ólíkt því sem er á Klipphúsinu þar sem ekki hefur þurft að panta tíma í klippingar. Verið svo bara velkomin í heimsókn ef þið eruð í leiðinni.
kv Monsi og Ninna
Skrifað í Blaður & Bull | 2 ummæli »
Höfundur: monsi á maí 23, 2006
Hello hello. Kíkið á rokkið í þessu trommusólói hjá Joey í Slipknot massa töff http://drummerworld.com/Videos/joeyjordison.html
Annars sýnist mér að hugmyndirnar séu hættar að flæða inn um nöfnin, erum eiginlega að komast að niðurstöðu og það er ekkert hár… þetta eða klippi….hitt og engin nöfn á lögum eftir íslenskar dægurlagasveitir. Það nafn sem kemur sterkast inn er stutt, fer vel í síma, logo og þess háttar. Nafnið verður ekki afhjúpað hér og því ennþá tími til að taka til sinna ráða ef þið viljið.
Að öðru þá er bara efst í huga mér blessaðir Finnarnir "Lordi & co" sem loksins fengu uppreisn æru eftir baráttu og diss í mörg ár, ég var sáttur mjög. Nú einhverstaðar var því fleygt fram að Snæfellingar verði bara víglegir á næsta tímabili í körfunni gaman verður að fylgjast með því og einnig fer nú HM í fótbolta í gang eftir 17 daga eða svo ég ætla að skjóta á að Englendingar kúki upp á bak, ekki það að ég voni það bara fílingur nema að Rooney verði góður og Gerrad í geðveiku stuði allann tímann og svo skýt ég á að Argentína, Brazzar og Portúgal verði einhverstaðar á topp 5 kannski Spánn, veit samt ekki eða Frakkar og Þjóðverjar kannski hver veit. En spútnikið núna verða Togo eða Ivory Coast. Mín spá allavega HVER ER ÞÍN?????
Þeir leikmenn sem verður gaman að sjá eru Xabi Alonso og Luis Garcia Spánn, Ronaldo Portúgal, Emmanuel Adebayor Togo, Saha Frakklandi, Rooney ef hann verður heill annars taka Joe Cole og Gerrard þetta bara hjá Enskum, Luca Toni hjá Ítölum, að sjálfsögðu verð ég að nefna Henrik Larsson hjá Svíum sem er stakur snillingur. Spurning með Fabregas Spáni og van Persie Hollandi. Ég þarf ekki að taka fram einstaka leikmenn hjá Braselíu og Argentínu þeir eru svo margir. Held líka að Baros hjá Tékkum, Ronaldo Braselíu, Nistelroy Hollandi og Owen Englandi verði vonbrigði. Svekktastur er ég yfir að sjá ekki Fernando Morientes Spáni og Ludovic Giuly Frakklandi spila. Þetta er mitt kalda mat. EN HVAÐ SEGIÐ ÞIÐ SEM ÁHUGANN HAFA??????
Svo var ég reyndara að velta fyrir mér kosningum í Hafnarfirði og sýnist ég ekkert verða Rauðari eða Grænni fyrir vikið og gott ef ég hef ekki bara Dökkblánað og hef velt því fyrir mér að bæta við fylgi D-listans hér í bæ ekki veitir af vegna of sterkrar hefðar Krata. En svona er það nú bara.
Annars kveð ég bara í bili og læt þessum vangaveltum mínum lokið að sinni.
"Hard rock halleluja" MONSI í EUROVISION 2007
Skrifað í Blaður & Bull | 9 ummæli »
Höfundur: monsi á maí 12, 2006
Svona til að taka saman það sem komið er þá er hér listi yfir það sem er komið og endilega haldið áfram! -Hársnyrtistofan……
|
Mamma: við Lækinn
|
Soffía: Hárrétt – Cut |
| Aron: El monzo |
Vigfús og Sigrún: Hárfix |
| Víglundur ninnu pabbi: Jósí – Síjó |
Arnar Ó: Mo&Ni – MoNi – Voxx – Hár í loftinu |
| Bjössi Geir: F-Hár |
Pétur: Í hár saman |
| Eyfi: Lufsan (síðan ´97) – Permanentstofan – Lagningarhúsið |
Ásta Sólveig: Hair – Gos |
| Gauti: Hjá Monsa – Monzi – Le Bon |
Ingvar: Hjá Monsa – Símon og Garfúnkel |
| Brynhildur: Hárfínt – Hárnákvæmt – Hársbreidd |
Stebbi: Klippistofan Klappað og Klárt (KKK) |
| Regína: Life style – New look – Spirit – Saks |
Andrés Ásm: Hár-smart |
Þetta er nú bara á alveg stórglæsileg þáttaka KEEP UP BRAINSTORMING!!!! ÍÍÍÍÍÍÍ´HAHAHAHA
kv. el Monzo
Skrifað í Blaður & Bull | 14 ummæli »
Höfundur: monsi á maí 9, 2006
Nú er komið að smá verkefni fyrir ykkur kæru lesendur, vinir og vandamenn.
Svo er komið fyrir að mig vantar nafn á Hársnyrtistofu og eru ykkar hugmyndir vel þegnar. Þetta er ekki grín þó ég eigi von á nokkrum slíkum. Ef þið teljið ykkur hafa eitthvað sniðugt endilega kvittið fyrir ykkur í comment boxið. Ef það er anonymus kvitt þá er ekki hægt að launa höfundarrétt ef til þess kæmi jejejejjbeibíjejejej.
Nafnið þarf að vera hip og kúl, tungumál er ekkert issue, gott í símsvörun og grípandi, sjáið það fyrir ykkur á auglýsingum og þarf ekki endilega að vera beint úr Hárbransanum bara your choice. Og eitt að lokum fleiri en eitt á mann er bara stemmari og ekkert vera að flýta ykkur þetta gildir til 25.05´06 svo að ef það kemur einhvern tíma á þessu bili þá er bara að skrifa niður og vinda sér í tölvukvikindið og smella því hérna inn. Óhóflegur dónaskapur og ærumeiðandi nöfn eyðast út.
Ef svo skemmtilega vill til að það verði notað nafn sem birtist hér á síðunni þá er nafnið opinbert og áskil ég mér þann rétt að nota það án frekari ráðfæringa. En verð jafnframt í sambandi við viðkomandi til að veita einhver verðlaun af einhverju tagi ó jújú.
Svo endilega brainstorm people!!!!!!!!!!!!
MONSI "þegar hár er annars vegar"
Skrifað í Blaður & Bull | 27 ummæli »